mánudagur, október 07, 2002


Til hamingju, Kolbeinn Sölvi!

7. 10. 2002

Þessi mánudagur er langt í frá að vera óbreyttur þó að margt bendi til slíks enda táknar október ekkert í augum Kolbeins nema í mesta lagi sjóbirtingur og kaldir puttar sem standa framúr veiðigrifflunum við hemuð vötn nokkuð yfir sjávarmáli Íslandsstrandar. En dagurinn er stór því að Kolbeinn Sölvi er orðinn árinu eldri og nú aðeins ár í kvarthundraðið. Veiðiferill kappans er þvílíkur að lengd og þykkt að liggur við að jafnist á við æviárin öllsömul, þó ekki alveg.
Kolbeinn óskar syni Sigga Sveins, laxakóngs í Ölfusá, til hamingju með daginn.

Kolbeinn Sölvi veiði!
Húrra!
Húrra!
Húrra!
Húrra!

miðvikudagur, september 11, 2002

Kveðja

Elsku börnin mín. Ég elska ykkur. Fyrir mér eruð þið eins og óveiddir fiskar í vatni. Heimskulegir og sérvitrir og bítið á hvert það agn sem að kjafti kemur. En þið eruð líka fallegir. Silfurbjarminn frá ykkur lýsir mér í skammdeginu og lyktin, ó, þessi lykt af nýslægðum liggjandi á árbakkanum, útrúnkaðir og slímugir. Ekkert slor, bara gullfalleg vinátta fallegra karlmanna. Guð ver með ykkur, og Kolbeinn.

föstudagur, ágúst 30, 2002

Meistari Kolbeinn

Meistari Kolbeinn,
meistari Kolbeinn,
veiðir þú?
veiðir þú?

Eru þeir að fá hann?
Eru þeir að fá hann?

Guð.
Guð.
Guð.

Guð.
Guð.
Guð.

mánudagur, ágúst 26, 2002

Útgáfuveisla og kveðjuhóf

Síðasta laugardag var þessi vefur gangsettur að heimili Kolbeins Sigurðar. Þar sveifi andi rómantíkur og platónskrar ástar yfir vötnum og töluvert var um karlmannlega nánd. Um leið var bætt við fögrum myndum af ferðum Kolbeins og nú er félagatalið prýtt fallegum myndum af glæstum Kolbeinum. Því í Kolbeini skiptir vináttan höfuðmáli og í sameiningu hrópum við fjórfalt húrra: HÚRRA HÚRRA HÚRRA HÚRRA Lengi lifi Kolbeinn (líkt og hann hefur þegar gert, þökk sé Guði).

föstudagur, ágúst 23, 2002

Heimasíðan gangsett

Að öllu óbreyttu verður heimasíða Veiðifélagsins Kolbeins gangsett við hátíðlegt tækifæri á morgun, laugardaginn 24. ágúst 2002. Staður og nákvæm tímasetning óákveðin. Kolbeinar eru hvattir til að mæta og skemmta hver öðrum með veiðisögum og góðum ráðleggingum um fluguhnýtingar og fleira gagnlegt.

Hver veit nema að takist að bæta inn einhverju efni fyrir þann tíma, s.s. glæsilegri mynd af félögum Kolbeins undir samnefndum lið eða fleiri myndum úr veiðiferðum.Í leiðinni verður Kolbeinn Bjarki kvaddur formlega en hann mun leita fengsælla vatna í flatneskju Danaveldis í vetur, skrifa skýrslu og skila inn til Kolbeins á vormánuðum. Honum innan handar verður Kolbeinn Aðalsteinn, sem þegar er kominn til Kaupmannahafnar til að leggja grunninn að vinnunni allri.

Kolbeinn vonar það besta en býst við hinu versta enda er veiði í menguðum tjörnum Evrópu ekki í uppáhaldi hjá Kolbeini. Kolbeinn vill brött fjöll, stríð veður og beljandi ár í sínum veiðileiðöngrum. Danska flatlendið gæti þó átt það tromp uppi í erminni að eiga kjörlendur fyrir frissbí-iðkun Kolbeina, en frissbí-íþróttin er aukabúgrein Kolbeins sem stöðugt sækir á.

Að lokum eru allir hvattir til að kynna sér nýtilkomið félagatal Kolbeins undir samnefndum lið. Glæsilegt hjá þér, Kolbeinn Hjörtur!

fimmtudagur, ágúst 22, 2002

Kolbeinn er ekki bara veiði. Kolbeinn er vinátta og virðing fyrir bráðinni. Kolbeinn er frisbí á sumarnóttum og hústökur í litlum kofum. Kolbeinn er hlátur og gleði ungra drengja. Kolbeinn er Guði þóknanlegur. Kolbeinn er Guð. Guð.
Unaðslegt er á að líta myndir úr síðustu ferð. Strax grípur tilhlökkunin sig yfir næstu ferð hvenær svo sem hún verður. En Stangveiðifélagið er komið til að vera. Það veit Guð og Kolbeinn sjálfur. Enda er hann nú hálfger guð.